Erum með síðustu villuna í boði en hún er tilbúin til afhendingar. Staðsetningin er frábær innan kjarna sem heitir "Pink Paradise" og er skammt frá Villamartín golfvellinum. Um er að ræða eign sem er fullbúin og afhendist með öllu, sjá myndir. Eignin er á einni hæð með 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi og lóð upp á ca. 172 m² en þessi tiltekna villa er að auki með kjallara og þakverönd.
Villan er með einkasundlaug, einkabílastæði og geymslu sem veitir þægindi og næði.
Verð 399.900 evrur + 12-14% kostnaður.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.