Spanarheimili kynnir:
Ný raðhús í framkvæmdum í San Pedro del Pinatar, sem verða á tveimur hæðum og með þaksvölum. Þessar eignir eru 100 m² og eru með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi og eru hannaðar í nútímalegum stíl þar sem stofa og eldhús er í opnu rými. Frá stofu er aðgengi út á verönd þar sem verður einkasundlaug og einkabílastæði á lóðinni.
Þessi kjarni er staðsettur í San Pedro del Pinatar og er við strendur Mar Menor og Miðjarðarhafið, sem býður upp á framúrskarandi lífsgæði, og er í nálægð við alla nauðsynlega þjónustu, svo sem matvörubúðir heilsugæslur og skóla. Að auki býður staðsetningin upp á skjótan aðgang að ýmsum afþreyingum, svo sem veitingastöðum, verslunum og afþreyingarsvæðum. Í aðeins nokkurra mínútna akstursfjarlægð eru nokkrir golfvellir.
Tilbúið til afhendingar í maí 2026.
Nánar um svæðið
Sérstök staðsetning bæjarins San Pedro del Pinatar við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurnina á fasteignum þar. Um 14 kílómetra langar strandlengjur skiptast milli innhafsins Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Mikilvægasta ströndin er Playa de La Puntica en þar er að finna falleg lítil hús og spa-svæði sem nær út á hafið.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is