Spanarheimili kynnir:
Fyrri áfangi sló í gegn og nú er áfangi 2 komin í sölu.
Cruise Resort - nýr kjarni í spænska bænum San Miguel de Salinas, í hjarta Orihuela Costa. Þessi íbúðakjarni samanstendur af 2. og 3. svefnherbergja íbúðum á 7 hæðum. Fjölbreytt hönnun og val um útfærslur á íbúðum. Jarðhæðir með einkagarði, 2-6 hæð með svölum og efstu hæðir með einka þaksvölum. Nútímaleg og hagnýt hönnun sem slegið hefur í gegn.
Þessi kjarni er aflokuð og hefur sameiginlegar sundlaugar fyrir bæði fullorðna og börn, auk stórra grænna svæða. Einnig munu litlu börnin geta notið leiksvæðis sem er sérhannað fyrir þau, rými sem er hannað fyrir líkamlega og andlega vellíðan.
Íbúðum fylgir bílastæði (inni eða úti) og möguleiki er að kaupa geymslu gegn aukagjaldi eða frá €3.900.
Staðsetningin er einstök, stutt á golfvelli og strendur Orihuela Costa og öll almenn þjónusta er í göngufæri í bænum San Miguel.
Tilvalið tækifæri fyrir þá sem eru að leita að nútímalegu heimili á góðum stað, með öll þægindi og þjónustu innan seilingar.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Hinn dæmigerði spænski bær er San Miguel de Salinas. Hann er staðsettur á hæsta punkti sveitar sinnar við Costa Blanca suður. Bærinn nýtur útsýnis yfir Torrevieja-saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínu akra í grenndinni sem meðal annars gerir hann ákjósanlegan jafnt til fastrar búsetu sem og styttri dvalar. Helsti iðnaður bæjarbúa er þjónusta og landbúnaður svo sem sítrónurækt, melónu- og ólífurækt. Bærinn býr yfir sjarma Miðjarðarhafsþorpsins. Þar má njóta viku markaðarins, sækja hellana í bænum heim eða taka þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Dýrlingadagur San Miguel er til dæmis haldinn hátíðlegur ár hvert og hefjast hátíðarhöld jafnan viku fyrir dýrlingadaginn sjálfan sem er 29. september. Matarmenning bæjarbúa einkennist af hinum hefðbundna næringarríka sveitamat „gazpacho manchego“ – girnilegur réttur unnin úr tómötum, sérstöku brauði og grænmeti ásamt kanínukjöti, hrísgrjónum og soði. Allt þetta og margt fleira gerir bæinn að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja komast í frí við Miðjarðarhafsströndina. Öll þjónusta er innan seilingar í þessu sjarmerandi litla bæ.