Spanarheimili kynnir: Nýjan íbúðakjarna í Los Alcázares sem býður upp þægindi og falleg útsýni að Mar Menor innhafinu. Kjarninn samanstendur af tveimur fjölbýlishúsum með lyftum, einka bílastæði fyrir hvert heimili og sameiginlegri sundlaug.
Íbúðirnar eru rúmgóðar og bjartar með stórum veröndum sem bjóða upp á stórbrotið útsýni yfir fallega bæinn, hafið og sérstaklega La Manga del Mar Menor, einn af gimsteinum bæjarins.
Hver eign er afhent með fúllbúnu eldhúsi, innbyggðum fataskápum og loftkælingakerfi í hverju herbergi, allt innifalið í verðinu.
Los Alcázares er heillandi strandbær í hjarta Mar Menor, þekktur fyrir rólegt andrúmsloft, strendur með heitu vatni og fjölbreytta þjónustu og afþreyingu. Svæðið býður upp á afslappaðan lífsstíl með allar þjónustur svo sem veitingastöðum, verslunum, læknaþjónusta og frístundasvæðum.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið
Los Alcázares er heilsulindarbær, staðsettur við strönd Mar Menor og státar af sjö kílómetra strandlengju frá Los Narejos til Punta Brava. Mar Menor er saltvatnslón 128 ferkílómetrar að stærð er hiti 5 gráðum yfir því sem er í Miðjarðarhafinu. Merkilegt nokk en svæðið er tiltölulega óþekkt og telst eitt best geymda leyndarmál Spánar. Allar strendurnar á svæðinu tengjast með stórkostlegum gönguleiðum. Þær eru fullbúnar með sturtum, gosbrunnum, aðgengi fyrir fatlaða. En þar má einnig iðka vatnsíþróttir og strandleiki. Landslag þar um slóðir er tiltölulega flatt sem gerir Los Alcázares ákjósanlegan fyrir þá sem hafa gaman að hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi. Tveir afar góðir golfvellir eru á staðnum: La Serena Golf og Roda Golf. Fjölbreytt úrval fasteigna er á svæðinu alveg frá íbúðum upp í stór einbýlishús en allar eignirnar standa í nálægð við strönd, golf og góða þjónustu.