Spánarheimili kynnir:
Íbúð í notalegum íbúðakjarna í Torreviejaborg, aðeins 300 metrum frá strönd, þetta er fullkomið fyrir þá sem vilja njóta frið við miðjarðahafið. Íbúðin er hönnuð í þessum miðjarðarhafsstíl er 53 m² og hefur 2 svefnherbergi, 1 baðherbergi, eldhús sem er hálf opið til stofu/borðstofu og frá stofunni er aðgengi út á svalir. Einnig fylgir falleg verönd sem eru rúmir 83 m² með útieldhúsi.
Eignin selst innréttuð með húsgögnum og loftkælingu og er tilbúin til að flytja inn
Flott tækifæri fyrir þá sem eru að leita að þægilegu heimili, nálægt sjónum og á rólegu svæði.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 558-5858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.