Þessi nútímalegu stórglæsilegu lúxus einbýlishús eru í byggingu í íbúðahverfinu „Balcon de Finestrat“, sem er aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá ströndum La Cala og Playa Poniente og verslunarmiðstöðinni „La Marina“ mitt á milli tveggja golfvalla. Húsin eru staðsett upp á hæð með stórbrotnu sjávarútsýni. Húsin eru á þremur hæðum á jarðhæð er sameinuð stofa og borðstofa með opnu eldhúsi, hjónaherbergi með en-suite baðherbergi, fataskápsherbergi og setustofu, gestasalerni og aðgengi að sólarverönd með fallegri infinity sundlaug . Á efri hæðinni eru þrjú svefnherbergi til viðbótar með sér baðherbergi og tvö með sérsvölum. Kjallari með stæði fyrir fimm bíla, eða mögulega líkamsræktarstöð, heilsulind, bíóherbergi og eða leikherbergi. Villan er búin gólfhita, loftkælingu og það er foruppsetning fyrir sundlaugarhitun og lyftu.
Nánar um svæðið:
Finestrat er við Benidorm sem er einn af vinsælli ferðamannastöðum Spánar, staðsettur í Valencia-héraði og telst höfuðborg Costa Blanca. Í dag er bærinn byggður hágæða hótelum og skýjakljúfum sem taka á móti jafn mörgum ferðamönnum erlendis frá og Spáni. Flestar verslanir og veitingahús eru í gamla bænum, en sá hluti var áður virki. Þröngar göturnar búa yfir miklum sjarma og mynda eins konar völundarhús stræta, gatna og innskota sem geyma fjöldann allan af áhugaverðum litlum búðum auk veitingahúsa og bara sem bjóða upp á gómsæta smárétti eða Tapas. Í Benidorm má finna margar af hæstu byggingum Spánar og fasteignaúrvalið er afar fjölbreytt. Hvort sem um fjárfestingu eða afslöppun er að ræða er öruggt að Finestrat tekur sérstaklega vel á móti þeim sem kaupa fasteign á staðnum.
Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Ísland - skrifstofa
© Copyright SpanarHeimili · All Rights Reserved · Lagalegur fyrirvari · Skilmálar · Cookies · Web Map
Hönnun & CRM: Mediaelx
Smákökur gera þér kleift að sérsníða upplifun þína á vefsíðu okkar, segja okkur hvaða hluta vefsíðna okkar fólk hefur skoðað, hjálpa okkur að mæla árangur auglýsinga og leitar á vefnum og veita okkur innsýn í hegðun notenda svo við getum bætt skilaboðum og vörum okkar. Frekari upplýsingar
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum móttekið beiðni þína um eignarviðmiðunina:1186. Einn af lyfjum okkar mun hafa samband við þig eins fljótt og auðið er.
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum fengið beiðni um skýrslu ef þú lækkar verð á eigninni með tilvísuninni: 1186
Í millitíðinni skaltu skoða þetta úrval af svipuðum eignum, sem gætu haft áhuga á þér: