Spánarheimili kynnir:
Las Bellas 15 lúxus einbýlishús í Finestrat- Benidorm. Nýr einbýlishúsakjarni, allar villurnar verða með einkabílastæði, 34 fermetra einkasundlaug og yfir 60 m2 þaksvölum. Rúmlega 520 m2 lóðir, 3-4 svefnherbergi, 3-4 baðherbergi og rúmlega 107 m2 kjallara. Möguleiki á að hafa lyftu og nuddpott á þaksvölum. Kjallarinn getur verið settur upp á marga vegu eins og gym, sjónvarpsherbergi, stúdíó eða í raun bara hvað sem er.
Verðbil fer eftir staðsetningu og tíma á undirskrift kaupsamnings en húsin byrja á 719.000 evrum
Nánar um svæðið:
Finestrat er við Benidorm sem er einn af vinsælli ferðamannastöðum Spánar, staðsettur í Valencia-héraði og telst höfuðborg Costa Blanca. Í dag er bærinn byggður hágæða hótelum og skýjakljúfum sem taka á móti jafn mörgum ferðamönnum erlendis frá og Spáni. Flestar verslanir og veitingahús eru í gamla bænum, en sá hluti var áður virki. Þröngar göturnar búa yfir miklum sjarma og mynda eins konar völundarhús stræta, gatna og innskota sem geyma fjöldann allan af áhugaverðum litlum búðum auk veitingahúsa og bara sem bjóða upp á gómsæta smárétti eða Tapas. Í Benidorm má finna margar af hæstu byggingum Spánar og fasteignaúrvalið er afar fjölbreytt. Hvort sem um fjárfestingu eða afslöppun er að ræða er öruggt að Finestrat tekur sérstaklega vel á móti þeim sem kaupa fasteign á staðnum.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is