Spánarheimili kynnir: Mjög fallegt og vel viðhaldið einbýli í miðjarahafsstíl sem situr á 615 m2 lóð með sjávarsýn. Húsið er í Los Dolses hverfinu í Villamartín og staðsetningin því hreint frábær en Villemartín golf og Villamartín Plaza eru stutt frá meðal annars. Húsið sem er á tveimur hæðum er með 3. svefnherbergi, 2. baðherbergi, stóru eldhúsi, bílskúr fyrir 3 bíla, einkasundlaug, sérgeymslu, aircon (heitt og kalt) og svölum. Lóðin er stór en viðhaldslítil með appelsínu og sítrónutrjám og nægu plássi til útivistar og sólbaða. Húsinu fylgja öll húsgögn. Glæsileg eign á fallegum stað - tilbúin til afhendingar. Nánar um svæðið: Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is