Spánarheimili kynnir:
Sjarmerandi horn parhús í Zenia Mar III kjarnanum í Punta Prima.
Húsið sem er stórt og á tveimur hæðum er 105 m2 og 3 svefnherbergja en að auki með 71 m2 flísalagður garður / útisvæði sem er gróið og fallegt.
Í húsinu eru 3 svefnherbergi (þar af eitt á jarðhæð), 2 baðherbergi, opið eldhús, stór borðstofa og stór glerverönd er á jarðhæð. Húsið er með aircon (heitt og kalt) og bílastæði fylgir eigninni. Innbú fylgir að auki.
Glæsilegur sameiginlegur sundlaugagarður og græn svæði.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.