Spánarheimili kynnir: Fallegt einbýli í Ciudad Quesada á 700 fm lóð með útsýni yfir La Marquesa golfvöllinn. Stutt er í iðandi mannlíf miðbæjarins og alla þjónustu. Um er að ræða eign með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Góð stofa og borðstofa eru í einu rými og eldhús er rúmgott. Stór garður með einkasundlaug. Hér er mikið pláss bæði úti og inni og stórkostlegt útsýni m.a. yfir golfvöllinn. Nánar um svæðið: Ciudad Quesada – Rojales er staðsett um það bil 8 kílómetra inni í landið frá Costa Blanca við Guardamar de la Segura. Alicante- og Murcia-flugvellir eru báðir í 50 kílómetra fjarlægð og næsta strönd er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð. Miðbær Ciudad Quesada er vel búinn verslunum, börum, veitingastöðum, golfvelli og eigin vatnagarði. Einbýli og raðhús eru fyrirferðamesti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er það að finna gott úrval íbúða. Framboðið er einkar heillandi: Gæði á góðu verði. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is