Spánarheimili kynna: Falleg raðhús á góðum stað í Villamartin hverfinu í Orihuela Costa. Í sölu er kominn fyrsti áfangi þessara húsa sem verða alls 24. Eignirnar eru 82 - 120 fm á 2 hæðum auk 20 fm þaksvala, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Sér garður/verönd með einkasundlaug. Staðsetning er frábær og stutt er að sækja alla þjónustu. Gengið er inn í opna stofu/borðstofu og er jafnframt opið inn í eldhús sem kemur fullbúið öllum tækjum. Á neðri hæð er jafnframt 1 svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi og 1 baðherbergi og útgengt er á litlar svalir. Stigi liggur þaðan upp á 20 þaksvalir þar sem sólar nýtur frá morgni til kvölds. Þetta eru bjartar og fallegar eignir á góðu verði sem verða tilbúnar til afhendingar í maí 2024. Verð er frá 294.000 € Nánar um svæðið: Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la Mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.