Spánarheimili kynnir:
Glænýr íbúðarkjarni, frábær staðsetning í eftirsóttu hverfi í Villamartin með veitingastaði og aðra þjónustur eins og matvöruverslanir í göngufæri. Þú ert með allt á þessu svæði, stutt er í fjölmarga golfvelli, stutt á fallegu strendur Orihuela Costa svæðis og nokkrar mínútur frá vinsælu verslunarmiðstöðinni Zenia Boulevard.
Um er að ræða íbúðarblokkir á 4 hæðum með lyftu og sameiginlegum garð með stórri sundlaug í miðjunni og leiksvæði fyrir krakkana.
Hægt er að fá íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Allar íbúðirnar eru hannaðar í nútímalegum stíl með opnu skipulagi þar sem þú hefur eldhús, borðstofu og stofu í opnu alrými og frá stofunni er gengið út á svalir verönd.
Íbúðir á jarðhæð verða með einkaverönd/garð
Íbúðir á miðhæðum hafa svalir með útsýni yfir kjarnan
Stærð íbúða allt frá 93 m2 - 111 m2
Verð frá 229.800€ - 254.700€
Tilbúið til afhendingar í júní 2023
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.