Spánarheimili kynnir:
Glænýr lúxuskjarni í byggingu á frábærum stað í eftirsótta hverfinu Lomas de Cabo Roig með veitingastaði, matvöruverslun og aðrar þjónustur í göngufjarlægð. Ekki nema ca. 5-10 mínútur að keyra í Zenia Boulevard ásamt næstu ströndum og golfvöllum á Orihuela Costa svæðinu.
Þessi frábæri kjarni samanstendur af fjölbýlishúsi á fjórum hæðum með einstökum garði þar sem eigendur fá afnot af sameiginlegri sundlaug kjarnans, líkamsræktarstöð og sameiginlegu skrifstofusvæði (co-sharing) þar sem eigendur geta unnið í félagslegu og opnu umhverfi.
Einnig verður bílakjallari þar sem fylgir einkabílastæði og gemyslu með hverri eign.
Íbúðir á jarðhæðum, miðhæðum sem snúa í suðausturátt með 2 eða 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Allar íbúðirnar verða hannaðar með hágæða efnum í opnum og nútímalegum stíl. Eldhúsin koma fullbúin með raftækjum (white goods), baðherbergin koma með golfhita og fylgir loftkæling í öllum herbergjum.
Verð frá 299.000€ - 460.590€
Tilbúið til afhendingar í Febrúar 2025.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með
ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og
fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng
og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum
hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg
falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra
golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las
Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á
meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með
bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem
gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta
Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia,
Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir
þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið
er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa
skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær
ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið
sitthvað við sitt hæfi.