Spánarheimili kynnir:
4 svefnherbergja eign staðsett í rólega bænum San Miguel de Salinas þar sem öll þjónusta og veitingastaðir eru í göngufjarlægð. San Miguel er bær 15 mínútum frá Orihuela Costa svæðinu og eru margir golfvellir staðsettir innan við 10-15 mínútna keyrslu.
Húsið var byggr árið 2000 og situr á 200 m2 lóð með einkasundlaug og bílsskúr á lóðinni.
Eignin er 114 m2 á tveimur hæðum með 4 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum ásamt rúmgóðri stofu/borðstofu með arinn og eldhúsi sem er opið til stofu.
Einnig er aðgengi upp á rúmgóðar þaksvalir þar sem hægt er að njóta sólarinnar í friði.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is