Spánarheimili kynnir: Glæsileg einbýlishús í Altaona íbúðahverfinu sem er í ca. 15 mín akstri í suður frá Murcia, sem er heillandi borg með allri þjónustu, afþreyingu og fallegum stöðum til að heimsækja. Altaona er staðsett við rætur Sierra de Carraskoy þjóðgarðsins og er öll hönnun umhverfis með það að leiðarljósi að þær verði umlyktar grænum svæðum og með beinan aðgang að gönguleiðum upp fjallið fyrir göngu- og hjólreiða unnendur. Öll húsin eru á einni hæð og bjóða upp á hagnýtt skipulag sem veitir algjöra ró og næði frá nánasta umvhverfi með sýnu L-laga skipulagi. Öll hönnun tekur mið af Feng Shui fræðunum en Feng Shui eru forn austurlensk fræði sem fjalla um orkuflæðið sem er allt í kringum okkur og hvernig við getum nýtt okkur það til góðs. Utsýni frá hverju húsi er einstakt en húsin snúa í suður og með endalausu útsýni yfir golfvöllinn og nærliggjandi svæðin í kring. Kjarninn er með fjórar mismunandi tegundum af húsum. Hér er um að ræða Balance villurnar, þær verða frá 128 m2 og sitja á lóðum sem eru frá 392 m2 lóðum og koma með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum + auka klósetti, opnu hágæða eldhúsi og rúmgóðri stofu/borðstofu með stórum gler hurðum sem opnast út á verönd með einkasundlaug og flottum garð. Hver eign er með bílastæði á lóðinni ásamt geymslu og þvottahúsi. Stærð frá 128 m2 - 167 m2 Stærð lóðar frá 392 m2 - 607 m2 Verð frá 438.000€ Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is um þessi glæsilegu hús