Spánarheimili kynnir : Einbýlishús á hinu glæsilega svæði Las Colinas Golf. Falleg náttúra einkennir Las Colinas, með appelsínutrjám, furuskógum og öðrum Miðjarðarhafsgróðri ásamt glæsilega golfvellinum sem er í 10 minútna akstursfjarlægð frá verslanamiðstöðinni Zenia Boulevard og ströndum Orihuela Costa. Lúxus hverfi sem girt er af og vaktað, tilvalið fyrir þá sem vilja frið og ró og fallega náttúru.
Bjartar og fallegar eignir þar sem dagsbirtan nýtur sin til fulls, hátt er til lofts og stórir gluggar gefa húsunum gildi. Stofa, borðstofa og eldhús eru sameinuð í rúmgott alrými sem opnast út á stóra verönd, sem er að hluta til yfirbyggt og sundlaugarsvæðið. Öll svefnherbergi eru með fataskápum og sér baðherbergi, en í hjónaherbergi er fataherbergi.
Útisvæðið er fallega hannað með svokallaðri infinity sundlaugarsvæði til afslöppunar .
Húsunum fylgir loftkæling og hitun, fullbúið eldhús, snjallkerfi til fjarstýringar á ýmsum búnaði, gólfhiti á baðherbergjunum, lýsing, innanhúss og utan ásamt fullfrágengnum garði með vökvunarkerfi og rafmagnshliðum.
Viltu fá frekari upplýsingar eða panta skoðun? Hafðu samband við okkur í dag – við aðstoðum þig með ánægju!
Verð frá €855,000 upp í €965,000
Um svæðið:
Las Colinas golfvallasvæðið hefur verið valið eitt besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbbi á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð er á svæðinu og auk þess tennis- og körfuboltavellir. Algjör lúxus fyrir vandláta.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is