Markaðsvirði eignar
Kr27.000.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir.
Falleg íbúð í einum besta íbúðarkjarnanum í Lomas de Campoamor, "Terrazas de Campoamor".
Íbúðin sem er byggð árið 2017 er á 2. hæð og er um 68m2. Íbúðin er nýtískuleg og björt og samanstendur af 2 svefnherbergjum með innbyggðum fataskápum og 1 baðherbergi. Björt og rúmgóð stofa, sér eldhús með þvottahúsi og suðursvalir. Selst með húsgögnum að hluta.
Innifalið í verði er bílastæði í bílakjallara. Útsýni frá suðursvölum í glæsilegan sameiginlegan sundlaugagarð þar sem að auki er leiksvæði fyrir börn og græn svæði til íþróttaiðkunar eða sólbaða. Kjarninn er aflokaður.
Flest þjónusta er í göngufæri sbr. veitingastaðir, verslanir og önnur þjónusta ásamt því að vera aðeins um 2 km frá ströndinni í Cabo Roig og Campoamor.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]