Markaðsvirði eignar
Kr90.100.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Fallegt einbýli i Ciudad Quesada. Allt nýlega uppgert og mjög fallega útfært 222 fm hús í göngufæri eða ca 500 m við aðal verslunar -og veitingastaða götuna í bænum. Tvöföld gler í öllu húsinu og vel einangrað.
Húsið stendur á 500 fm lóð, mjög stór bílastæði fyrir tvo bíla á lóðinni ásamt bílskúr. Lóðin er flísalögð og liggur hringin í kringum húsið með einkasundlaug 8x4 metrar að stærð og góðri verönd sem snýr í suður.
Gengið er inn í forstofu og er eitt baðherbergi í forstofunni þaðan er gengið inn í stórt opið rými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Fallegur og öflugur arinn er í stofunni. Það eru tvö svefnherbergi og baðherbergi inn af þeim báðum.
Kjallari er undir öllu húsinu og þar er stofa með fallegum bar, stórt herbergi og baðherbergi, stórt rými sem nú er geymsla, þvottahús og fleira en þar mætti setja upp eldhús og annað herbergi inn af því
Nýtt aircon í öllum rýmum.
Stór glæsileg eign sem vert er að skoða.
Húsgögn fylgja með í þessum kaupum fyrir utan persónulega hluti eiganda.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]