Markaðsvirði eignar
Kr36.300.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Notaleg íbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi sem er staðsett í Altea la Vella, stutt frá golfvelli, er með allar nauðsynlegar þjónustur nálægt og er um 10 mínútna keyrslu frá fallegu ströndum Altea.
Þessi íbúðakjarni samanstendur af fjölbýlishúsi með lyftu, flottum sameiginlegum garði með sundlaug sem er upphituð sem gerir það kleift fyrir eigendur að nota sundlaugina yfir veturinn. Það fylgir einnig einkabílastæði með eigninni.
Íbúðin er 107 m² og er með 2 svalir, aðrar eru með fallegu útsýni yfir sundlaugina grænu svæðin í kring. Íbúðin er með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi, inn frá eldhúsinu ertu með þvottahús og frá stofunni er aðgengi út á stærri svalirnar.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]
Um svæðið:
Hvíta strandþorpið Altea á er sannkölluð perla á Costa Blanca og hefur oft verið valið eitt af 10 fallegustu þorpum á Spáni. Vinsæli gamli bær Altea, sem er staðsettur á hæð, með fallegri kirkju og kirkjutorgi er mikilvægasta aðdráttarafl bæjarins. Hægt er að rölta um þröngar götur og njóta einstakrar fegurðar litlu húsana oft skreytt með sérstökum bohemian stíl. Þú getur verslað í einni af mörgum handverksverslunum, borðað góðan mat á einum af fjöldamörgum góðum veitingastöðum og notið stórkostlegs útsýnis yfir ströndina. Strendurnar í Altea eru fullkomnar fyrir strandfrí og laða til sín sólþyrsta ferðamenn alls staðar að úr heiminum. Frábær staður fyrir alla sem vilja sameina sól og sjó með menningu og sögu.