Markaðsvirði eignar
Kr89.400.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Stórglæsileg 5 ný einbýlishús í vinsæla kjarnanum Santa Rosalia. Villurnar eru 3ja herbergja, 3 baðherbergi á góðri lóð. kjallari, verönd, einkasundlaug og garður. Góð staðsetning við lónið. Tilbúin til afhendingar 12 mánuðir frá undirritun kaupsamnings.
Verð frá 587.000 evrum
Um svæðið:
Santa Rosalía er algjörlega einstakt svæði með stærsta manngerða lóni í Evrópu. Svæðið er í mikilli uppbyggingu en Santa Rosalía er staðsett á Costa Cálida ströndinni sem er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Torreviejasvæðinu. Bærinn Los Alcázares er í göngufæri og þar er meðal annars að finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þjónustu sem hægt er að hugsa sér.
Santa Rosalía Resort er sérhannað fyrir íbúa til þess að njóta og slaka á. Innan svæðisins er að finna stór græn svæði með leiksvæði fyrir börn og fullorðna og þar er hægt að stunda hinar ýmsu íþróttir, s.s. körfubolta, golf, og strandblak. Hlaupa- og hjólastígar liggja umhverfis allt svæðið og upplagt er að nýta piknikk svæðin til að grilla með stórfjölskyldunni. Síðast en ekki síst er þarna að finna kristaltært og seiðandi lónið þar sem hægt er að stunda fjölbreytt vatnasport sem og klúbbhús með veitingahúsi og líkamsræktaraðstöðu.
Nánari upplýsingar um Santa Rosalia svæðið má sjá hér https://spanarheimili.is/santarosalia
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og [email protected]