Markaðsvirði eignar
Kr55.700.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsileg einbýlishús (7 einbýli í boði) á einni hæð í Los Montesinos sem er fallegur lítill bær á Orihuela Costa svæðinu. Stutt er í alla þjónustu eins og veitingastaði, matvöruverslanir, banka og apótek. Habaneras verslunarmiðstöðin er td. í eingöngu 12 mín. akstursfjarlægð og ströndin á Guardemar er í ca. 18 mín. akstursfjarlægð.
Um er að ræða einbýli sem eru 108 m2 á einni hæð og með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Lóðirnar eru frá 214 m2 til 301 m2 með bílastæði á lóð. Hægt er að fá einkasundlaug innan lóðar og þakverönd. Auka kostnaður er vegna þessa.
Gengið er inn í nútímalegt eldhús sem er opið til stofu/borðstofu og frá eldhúsi er gengið út á verönd. Út frá stofu finnur þú herbergja ganginn með þremur svefnherbergjum, þar af eitt með en-suit baðherbergi.
Húsin eru til afhendingar í desember 2025.
Verð frá 364.900€ til 421.900€
+ 13-15 kostnaður.
Nánar um svæðið:
Los Montesinos er fallegur spænskur bær um það bil 12 kílómetra inni í landið frá ströndinni í Guardamar de la Segura. Alicante- og Murcia-flugvellir eru báðir í 50 kílómetra fjarlægð. Bærinn Ciudad Quesada er í ca. 10 mín. akstursfjarlægð sem er vel búinn verslunum, börum, veitingastöðum, golfvelli og eigin vatnagarði. Einbýli og raðhús eru fyrirferðamesti hluti fasteignaframboðsins í Los Montesinos. Fjöldi golfvalla er í 10-15 mín. akstursfjarlægð eins og Vistabella Golf, La Finca Golf og La Marquesa Golf ásamt fleirri völlum.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]