Markaðsvirði eignar
Kr36.900.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsilegur kjarni íbúða við La Serena golfvöllinn. Í fyrsta áfanga sem snýr í suður verða í boði 18 íbúðir sem eru allar 2 svefnherbergja og 86 m2. Kjarninn er á þremur hæðum en jarðhæðir eru með einkagarði, 1. hæðin með góðum svölum og efstu hæðir með einkaþaksvölum. Innan íbúða er þvottahús og lítil geymsla.
Kjarninn er aflokaður en innan hans er sundlaug, sólbaðsaðstaða og opin svæði til hreyfingar.
Hverri íbúð fylgir einkabílastæði í lokuðum bílakjallara.
Verð frá 241.295€ til 279.295€.
Til afhendingar í Desember 2026.
Um svæðið:
Los Alcázares er bær ca. 20 mínútum frá La Zenia svæðinu eða lengra suður í átt að Cartagena borg. Los Alcázares er notalegur og flottur spænskur bær sem býður upp á ýmis konar þjónustu, flotta veitingastaði og góðar strendur. La Serena Golf er glæsilegur golfvöllur sem er staðsettur við hliðina á þessum flotta kjarna. Að auki eru margir golfvellir í 15-20 mín. akstursfjarlægð.
Espacio mediterraneo er stór verslunarmiðstöð 20 mínútum frá Los Alcázares eða rétt fyrir utan Cartagena, þar sem allt er að finna frá veitingastöðum, fatabúðum, matvörubúðum, húsgagnaverslunum o.s.frv.