Markaðsvirði eignar
Kr32.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsilegur kjarni íbúða / einbýlishúsa við La Serena golfvöllinn. Um er að ræða fyrsta áfanga en í honum eru í boði 34 íbúðir í
3. hæða íbúðarkjarna. Í boði eru bæði 2 og 3 svefnherbergja íbúðir.
Jarðhæðir eru með einkagarði og sumar með möguleika á einkasundlaug. 1. hæðin með góðum svölum og efstu hæðir með einkaþaksvölum. Fyrsti fasinn verður svo til afhendingar í September 2025.
Golfvallar útsýni frá öllum íbúðum.
Flott sameiginlegt svæði tilheyrir kjarnanum en þar má finna sundlaug, sólbaðsaðstöðu og opið svæði til hreyfingar.
Hverri íbúð fylgir einkabílastæði og geymsla í lokuðum bílakjallara.
Verð frá 220.000€ til 350.000€.
Um svæðið:
Los Alcázares sem er bær 20 mínútum frá La Zenia svæðinu eða lengra suður í átt að Cartagena borg. Los Alcázares er notalegur og flottur spænskur bær sem býður upp á ýmis konar þjónustu, flotta veitingastaði og góðar strendur. Roda Golf er glæsilegur gólfvöllur sem er staðsettur við hliðina á þessum flotta kjarna.
Espacio mediterraneo er stór verslunarmiðstöð 20 mínútum frá Los Alcázares eða rétt fyrir utan Cartagena, þar sem allt er að finna frá veitingastöðum, fatabúðum, matvörubúðum, húsgagnaverslunum o.s.frv.