Markaðsvirði eignar
Kr93.100.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynna:
Glæsileg lúxuseinbýlishús í Balcón de Finestrat. Nútímalega og fallega hönnuð hús sem samanstanda af 3 björtum svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og stofu með opnu eldhúsi (heimilistæki innifalinn). Eigninni fylgir stór lóð með einkasundlaug og garði með frábæru útsýni og fallegum garði. Möguleiki er á þakverönd og/eða kjallara. Staðsetning eignarinnar er nálægt allri þjónustu, í aðeins 5 mínútna fjarlægð frá Puig Campana Golf og 10 mínútur frá La Marina verslunarmiðstöðinni með matvöruverslunum, verslunum, börum og veitingastöðum.
Nánar um svæðið:
Finestrat er við Benidorm sem er einn af vinsælli ferðamannastöðum Spánar, staðsettur í Valencia-héraði og telst höfuðborg Costa Blanca. Í dag er bærinn byggður hágæða hótelum og skýjakljúfum sem taka á móti jafn mörgum ferðamönnum erlendis frá og Spáni. Flestar verslanir og veitingahús eru í gamla bænum, en sá hluti var áður virki. Þröngar göturnar búa yfir miklum sjarma og mynda eins konar völundarhús stræta, gatna og innskota sem geyma fjöldann allan af áhugaverðum litlum búðum auk veitingahúsa og bara sem bjóða upp á gómsæta smárétti eða Tapas. Í Benidorm má finna margar af hæstu byggingum Spánar og fasteignaúrvalið er afar fjölbreytt. Hvort sem um fjárfestingu eða afslöppun er að ræða er öruggt að Benidorm tekur sérstaklega vel á móti þeim sem kaupa fasteign á staðnum.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]