Aftur á yfirlitssíðu

Parhús
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1131
€. 369.000

Einstök parhús / einbýli í bænum Ciudad Quesada

Kr56.200.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 94 fm
Fjöldi svefnherbergja 3 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 3 baðherbergi
38 km
5 km
1 km
3 km

Markaðsvirði eignar

Kr56.200.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

"AREA beach IV" í bænum Ciudad Quesada eru ný og spennandi parhús / einbýli á flottum stað, í göngufæri við "Laugaveginn" í Ciudad Quesada.

Um er að ræða kjarna 28 parhúsa og 2 einbýla.  Húsin sem eru öll hönnuð með glæsilega hönnun og notagildi að leiðarljósi eru með 3. svefnherbergi og 3. baðherbergi, einkasundlaug, einkaþaksvalir og garð. Opið og bjart eldhús sem tengist við bjart rými stofu þar sem er útgengt á verönd og garðinn. Húsin eru frá 94 m2 á tveimur hæðum en garðurinn er frá 167 m2. Þaksvalir eru frá 29 m2 og svalir frá 14,6 m2. Innifalið í verði er aircon (heitt & kalt) og öll tæki í eldhús sbr. ofn, eldavél, ísskápur, helluborð og örbylgjuofn.

Afhending frá Ágúst 2025.

Parhús.
Verð frá 369.000 til 395.000 evrur + kostnaður.
Einbýli.
Verð 495.000 evrur + kostnaður.

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]

Nánar um svæðið:
Ciudad Quesada – er staðsett um það bil 8 kílómetra inni í landið frá Costa Blanca ströndinni við Guardamar de la Segura. Alicante- og Murcia-flugvellir eru báðir í 50 kílómetra fjarlægð og næsta strönd er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð. Miðbær Ciudad Quesada er vel búinn verslunum, börum, veitingastöðum, golfvelli og eigin vatnagarði. Einbýli og raðhús eru fyrirferðamesti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er það að finna gott úrval íbúða.

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.