Spánarheimili kynnir:
Endurnýjuð 2 svefnherbergja íbúð á 1. hæð miðsvæðis í Torrevieja.
Staðsetningin er frábær ef þú vilt vera nálægt öllu og geta haft flest í göngufæri eins og verslanir, veitingastaði og ströndina.
Svefnherbergin eru tvö ásamt tveimur baðherbergjum (öðru baðherbergi breytt í þvottahús), opið og bjart eldhús ásamt stofu og svölum með glerlokun. Nýtt aircon (heitt og kalt), ný gólfefni, nýtt eldhús ofl. ofl.Eignin er laus og fylgir innbú með að stæðstum hluta.
Verð 124.900 evrur.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 558-5858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.