Spánarheimili kynnir:
Efri sérhæð í mjög góðum íbúðarkjarna á frábærum stað í Punta Prima þar sem veitingastaðir og önnur þjónusta er í göngufæri og stutt er í Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina, golfvelli og fallegu strendurnar á Orihuela Costa svæðinu.
Komið er inni opið rými með eldhúsi borðstofu og stofu, útgengt úr stofu út á 21 fm svalir og þaðan upp á 53 fm þaksvalir/solaríum með óviðjafnanlegu útsýni til allra átta. Á svefnherbergja gangi eru tvö rúmgóð herbergi og tvö baðherbergi annað inn af hjónaherbergi. Bæði herbergin eru með rúmgóðum og vönduðum skápum.
Eigninni fylgir merkt bílastæði í bilakjallara, stórar sundlaugar, barnaleiksvæði, úti líkamsræktar svæði, yfirbyggð upphituð sundlaug, heiturpottur, gufubað og búningsklefar. Þessi eign er einkar vel staðsett í göngufæri við verslunarkjarna svo aðgengi að fjölda veitingastaða, verslunum og alls kyns þjónustu er mjög góð. Svo er stutt að labba niður á Pumta Prima ströndina.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.