Spánarheimili kynnir : Fallegt gróið og lokað umhverfi, göngustígar, hlaupabrautir, sundlaugar, barnalaugar, líkamsræktraraðstaða, kaffihús, barir og mikil önnur afþreying sem gerir kjarnan einn þann flottastann á öllu Costa Blanca svæðinu. Glænýjar og vandaðar 2 og 3 svefnherbergja þakíbúðir á frábærum stað á Playa Flamenca, stutt frá La zenia og villamartin hverfunum , 10 mín. göngufæri í Zenia Boulevard, flottu verslunarmiðstöðina og aðeins 5 mín. rölt á vinsæla laugardagsmarkaðinn í Playa Flamenca, Einnig tekur ekki nema um 10 mín að rölta á fallegar strendur. Mercadona og úrval fleiri verslana og veitingastaða örstutt frá. Um er að ræða ný fjölbýlishús með lyftu. Íbúðirnar eru með tveim eða þremur svefnherbergjum og einu eða tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Þaksvalirnar eru frá 63 til 73m2 að stærð, auk þess eru svalirnar tæplega 19 til 34m2 . Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sundlaugum, heitum pottum og líkamsræktaraðstöðu, kaffihúsi börum ofl. Góð leikaðstaða fyrir börnin. Stæði í bílakjallara og geymsla fylgir kaupum. Stærð frá 74 m2 - 101 m2 Verð er frá 329.700 - 356.700€. fyrir þakíbúð með 2 herbergjum og 1 baðherbergi. Verð frá 351.900 - 393.900€. fyrir þakíbúð með 2 herbergjum og 2 baðherbergi. Verð frá 403.900 - 483.500€. fyrir þakíbúð með 3 herbergjum og 2 baðherbergi. Tilbúnar til afhendingar í september og nóvember 2023.