Spánarheimili kynnir:
Nýr kjarni í framkvæmdum í Santa Rosalia Lake & Life resort sem er flottur kjarni á góðum stað nálægt Los Alcázares. Eignirnar verða staðsettar í kringum La Reserva sem er risa svæði sérhannað fyrir eigendur til þess að njóta og slaka á. Þarna verður allt sem hægt er að ímynda sér, kristaltært baðlón, golfvöllur, stór græn svæði þar sem eru leiksvæði fyrir börn og fullorðna. Einnig eru íþróttasvæði og strandklúbbur.
Innan kjarnans er risa svæði sem var upphaflega 9 holu golfvöllur en hefur núna verið breytt í resort. Í miðju 17.000 m2 kristaltæru lóninu eru 2 litlar eyjar og á einni þeirra er strandbar. Einnig er klúbbhús með veitingastað og minigolf völlur eingöngu fyrir eigendur. Það eru hjólastígar allt um kring og má segja að svæðið sé algjör paradís.
Nánari upplýsingar um Santa Rosalia svæðið má sjá hér https://spanarheimili.is/santarosalia
Þessi kjarni samanstendur af 4 fjölbýlishúsum með 60 íbúðum og upphitaðri sameiginlegri sundlaug.
Um er að ræða íbúðir á jarðhæð, annarri hæð, þriðju hæð og penthouse íbúðir með einkaþaksvölum með útieldhúsi.
Þakíbúðirnar verða ca. 67 m2 og verða með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum og verða hannaðar með nútímalegum stíl og opnu skipulagi. Frá stofunni er aðgengi út á svalir og frá svölunum er aðgengi upp á rúmlega 50 fm þaksvalirnar með útsýni yfir kjarnann.
Eldhúsið kemur fullbúið með ofni, örbylgjuofni, uppþvottavél, ísskáp, helluborði og eldhúsháf.
Það fylgir einnig einkabílastæði og geymsla í bílakjallara.
Það er einungis 1 þakíbúðir eftir. Verð 399.000€ + kostnaður.
Tilbúið til afhendingar og allt innifalið sbr. húsgögn og aircon.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is