Spánarheimili kynnir:
150 m² lúxusíbúð til sölu við ströndina í fallega bænum Altea á norður Costa Blanca. Íbúðin er á fimmtu hæð í byggingu með lyftu og býður upp á óborganlegt sjávarútsýni. 4 svefnherbergi og 3 glæsilega innréttuð baðherbergi. Hjarta íbúðarinnar er eldhúsið sem opið inn í stóra stofu þar sem náttúrulegt ljós og sjávarútsýni ráða ríkjum.
Toppurinn er stórbrotin verönd sem opnast að fullu og býður upp á víðáttumikið útsýni yfir Miðjarðarhafið. Íbúðinni fylgir einnig bílastæði í bílakjallara sem tryggir þægindi og öryggi.
Eignin fór í gagngerar endurbætur árið 2019, þar sem skipt var um allar innréttingar.
Ef þig hefur verið að dreyma um eign á fallegri strönd þá er þetta tækifærið
Um svæðið:
Hvíta strandþorpið Altea á er sannkölluð perla á Costa Blanca og hefur oft verið valið eitt af 10 fallegustu þorpum á Spáni. Vinsæli gamli bær Altea, sem er staðsettur á hæð, með fallegri kirkju og kirkjutorgi er mikilvægasta aðdráttarafl bæjarins. Hægt er að rölta um þröngar götur og njóta einstakrar fegurðar litlu húsana oft skreytt með sérstökum bohemian stíl. Þú getur verslað í einni af mörgum handverksverslunum, borðað góðan mat á einum af fjöldamörgum góðum veitingastöðum og notið stórkostlegs útsýnis yfir ströndina. Strendurnar í Altea eru fullkomnar fyrir strandfrí og laða til sín sólþyrsta ferðamenn alls staðar að úr heiminum.
Frábær staður fyrir alla sem vilja sameina sól og sjó með menningu og sögu.