Spánarheimili kynnir:
Nýbyggð sérstaklega björt einbýli á einni hæð í Finestrat. Villa Toulouse eru 114,5 m2 einbýlishús á einni hæð, með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og 48,2 m2 verönd. Húsin verða tilbúin til afhendingar í desember 2024 og koma með öllum heimilstækjum og loftkælingu. Boðið er upp á möguleika að bæta við gólfhita, setja inn varnarkerfi og fleira.
Vel staðsett við golfvöll og stutt í alla þjónustu.
Nánar um svæðið:
Finestrat er við Benidorm sem er einn af vinsælli ferðamannastöðum Spánar, staðsettur í Valencia-héraði og telst höfuðborg Costa Blanca. Í dag er bærinn byggður hágæða hótelum og skýjakljúfum sem taka á móti jafn mörgum ferðamönnum erlendis frá og Spáni. Flestar verslanir og veitingahús eru í gamla bænum, en sá hluti var áður virki. Þröngar göturnar búa yfir miklum sjarma og mynda eins konar völundarhús stræta, gatna og innskota sem geyma fjöldann allan af áhugaverðum litlum búðum auk veitingahúsa og bara sem bjóða upp á gómsæta smárétti eða Tapas. Í Benidorm má finna margar af hæstu byggingum Spánar og fasteignaúrvalið er afar fjölbreytt. Hvort sem um fjárfestingu eða afslöppun er að ræða er öruggt að Finestrat tekur sérstaklega vel á móti þeim sem kaupa fasteign á staðnum.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is