Spánarheimili kynnir:
Nýr íbúðarkjarni, Waldorf Astoria í bænum Benijófar. Um einungis 36 íbúðir er að ræða í 3. hæða kjarna sbr. íbúðir á jarðhæð, 2. hæð og þakíbúðir.
Í kjarnanum er hægt að fá sér bílastæði og geymslu í bílakjallara gegn aukgjaldi.
Hver íbúð er með 2. eða 3. svefnherbergi og 2. baðherbergi ásamt eldhúsi, borðstofu og setustofu með aðgengi út á svalir með útsýni yfir sameiginlega garðin og fallega nátturu.
Þakíbúðirnar eru með auka baðherbergi og 70-103 m2 þaksvölum og að auki er ein þakíbúð með 2,5 x 2,5 m busl laug. Hægt er að bæta við útieldhúsi. Öllum íbúðum fylgja tæki í eldhúsi.
Stærð frá 73 m2 - 97 m2
Verð frá 247.000€ til 435.000€ (penthouse íbúðir)
Tilbúnar til afhendingar í desember 2025
Um svæðið.
Benijofar er lítill og fallegur bær staðsettur á suður Costa Blanca svæðinu. Næstu bæjir eru Rojales, Ciudad Quesada og strandbærinn Guardemar De Segura en þessir bæjir eru innan við 5-10 mínutur frá í akstri.
Stutt er til Torrevieja og Guardamar del Segura. Í Benijofar er fallegur miðbær þar sem öll þjónusta er við hendina eins og veitingastaðir, matvöruverslanir, almennar verslanir og svo framvegis. Og ekki má gleyma McDonald´s.
Margir Íslendingar hafa með okkar aðstoð fundið draumaeignina í Benijofar.
Vatnsskemmtigarðurinn Aquapark í Rojales er í 10 mínútna akstursfjarlægð frá Benijofar og La Marquesa golfvöllurinn er í ca. 7 mínutna akstursfjarlægð. Til gamans má geta þess að nafnið Benijofar er sótt í Arabísku og merkir "Son of the pearl".
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is