Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1429
€. 196.000

Valentinogolf III – NÝKOMIÐ í sölu – Villa Martin

Kr29.400.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 75 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
42 km
5 km
1 km
1 km

Markaðsvirði eignar

Kr29.400.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir : Loksins kominn í sölu nýi íbúðarkjarninn Valentinogolf III  í Villa Martin hverfinu á Torreviejasvæðinu á síðustu óbyggðu lóðinni þar sem nú þegar er buið að byggja upp á síðustu 4 árum samnefnda kjarna nr I og II. Mjög vinsælar íbúðir enda staðsetningin frábær í grónu eldra hverfi í kring og ekki nema um 10 til 15 min rölt í Villa Martin Plaza þjónustukjarnann þar sem finna má úrval veitingastaða, bari , apótók, banka, matvörubúð ofl
Villa Martin golfvöllurin er við hliðina á þessum íbúðakjarna og liggur 2. og 3ja brautina rétt fyrir neðan en ekki nema um 15 min rölt á fyrsta teig.

Valentinogolf III kjarninn er glæsilegur í alla staði og frábær hönnun á íbúðum en íbuðirnar eru frá 75 fm að stærð og upp í 105 fm að stærð og fylgir hverri íbúð merkt stæði ofanjarðar en kjarninn er aflokaður og með vandaðri sameign þar sem sundlaug - leiktæki fyrir börnin - líkamsræktartæki og boccia brautir.

Allar íbúðir eru með 2 svefnherb og 2 baðherb en annað baðherb er inn af hjónaherberginu.

Í boði eru íbúðir á jarðhæð - 1.hæð - 2.hæð og 3ju hæð sem er þá penthouse íbúð með einkaþaksvölum og góðu útsýni

Verða íbúða er frá 196.000 evrum eða 28,2 millj og upp í 275.000 evrur eða 39,6 millj

Penthouse íbúðirnar eru með einkaþaksvölum og jarðhæðaríbúðirnar með einkasundlaug.

Íbúðir í blokk 1 verða tilbúnar til afhendingar í mars 2023.

Íbúðir í blokk 2 verða tilbúnar til afhendingar í júlí 2023

***Festu þér draumeignina með staðfestingargjaldi - frábær fjárfesting***

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is

 

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.