Markaðsvirði eignar
Kr48.200.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Penthouse íbúð í Playa Flamenca með sjávarútsýni sem snýr í suður. Staðsett á frábærum stað þar sem er stutt í flest alla þjónustu og aðeins eru nokkrar mínútur á marga veitingastaði. Meðal annars er Playa Flamenca C.C. aðeins 5 mínútur að labba og er sá kjarni þekktur fyrir sína fjölbreyttu veitingastaði. Einnig eru aðeins 5 mínútur að keyra í stóru verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Þessi eign er 230 m2 og er með 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi ásamt stærðar svölum þar sem er frábært sjávarútsýni. Eldhúsið er stórt og er með meira en nóg af skápaplássi. Opið er frá stofu og borðstofu í eldhúsið og frá stofunni er gengið út á svalirnar. Öll svefnherbergin eru með innbyggða fataskápa og eitt svefnherbergi er master svíta og er því með einkabaðherbergi.
Eigendur munu hafa aðgang að 2 sameiginlegum sundlaugum og stórum garði.
Loftkæling og húsgögn eru innifalin í verði.