Markaðsvirði eignar
Kr44.600.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Nýjan íbúðakjarna á einum hæsta punkti Las Colinas og hefur útsýni yfir Miðjarðarhafsskóginn og hafið frá hæstu íbúðum. Annar áfangi þessa kjarna samanstendur af þremur byggingum, með samtals 51 lúxus íbúðum sem snúa í suður með stórum veröndum. Þessi þakíbúð er um 76fm stór, með 18fm svalir, auk sér 40fm þakverönd og er tilbúin til afhendingar í júlí 2020. Verð 297.000€. Allar íbúðirnar eru með bílastæði og geymslu. Sameiginlegir garðar, einkasundlaug og slökunarsvæði, umkringt pálmatrjám og náttúrulegum gróðri. Dalurinn þar sem íbúðarblokkin er staðsett er um 330 hektarar, umkringd hæðum og snýr að sjónum, en niður dalinn liggur þessi framúrskarandi golfvöllur. Lítill þéttleiki einkennir byggð í Las Colinas og virðing er þannig borin fyrir umhverfinu og náttúrunni. Tilvalinn staður fyrir ró og næði, með 200.000 m² af náttúrulegu svæði. Þessar lúxus íbúðir eru staðsettar á einu af hæðstu svæðum í Las Colinas Golf, og njóta fallegs útsýnis yfir allt.
Las Colinas er í um 50 mín akstur frá Alicante flugvellinum.