Markaðsvirði eignar
Kr56.600.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
SPÁNARHEIMILI KYNNIR;
Glæsilegt nýlegt parhús á einni hæð með einkasundlaug og einkaþaksvölum inni Vistabella svæðinu en húsið selst með öllum húsgögnum og húsbúnaði. Vistabella golfsvæðið er öryggisvaktað 24/7 og er í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Orihuela Costa en umlykis Vistabella eru sjarmerandi spænskir bæir sem gaman að er að heimsækja. Einstakt golfvallarumhverfi með öllum þægindum svo sem verslunum, veitingastöðum og fyrsta flokks aðstöðu til íþróttaiðkana.
Húsið er byggt árið 2021 og stendur á tæplega 300 fm lóð sem er afgirt. Hægt er að leggja bíl inni á lóðinni en við húsið er einkasundlaug. Öll lóðin er frágengin með gervigrasi og flísalögðum veröndum. Gengið utan frá upp á einkaþaksvalir sem er um 40 fm að stærð og þar er einstök aðstaða til að njóta sólar eða útýnis yfir sveitirnar í kring.
Komið er inn í alrými þar sem er falleg björt stofa með borðstofu og opið er inní eldhúsið sem er vel búið og öll helstu áhöld til matargerðar. Í stofunni er góður sófi og snjallsjónvarp svo gestir geta skráð sig inná sínar streymisveitur. Frá stofu er rennihurð út á stóra verönd með borði, stólum, sólbekkjum og góðri aðstöðu til að njóta.
Í húsinu eru 3 svefnherbergi og eru þau öll með tvíbreiðu rúmi, fataskáp, góðum sængum og loftkælingu en úr hverju og einu herbergi er hægt að ganga út á lóðina. Baðherbergin í húsinu eru 2 og er þau rúmgóð, með salerni, vask, góðri sturtu og innréttingu. Innangengt er inn á annað þeirra úr hjónaherberginu.
Verð með öllu inniföldu 379.000 € + 13-14% í öll opinber gjöld og annan kostnað
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is