Markaðsvirði eignar
Kr44.300.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Spennandi raðhús með mikla möguleika í Cabo Roig. Staðsett í grónum og rólegum kjarna stutt frá fallegu ströndinni í Cabo Roig. Stutt er í flesta þjónustu og aðeins eru um 10 mínútur að labba á þekkta Strippið. Þar er meðal annars að finna mikið úrval af flottum og fjölbreyttum veitingastöðum og börum. Einnig eru um 5 mínútur að keyra í stóru verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Um er að ræða raðhús á þremur hæðum sem var byggt árið 1989. Það eru 4 svefnherbergi og 3 baðherbergi. Eldhúsið er opið til stofu og borðstofu og fyrir utan stofuna er einkaverönd. Á annarri hæð eru 3 svefnherbergi og baðherbergi ásamt svölum sem snúa að sameiginlegri sundlaug sem eigendur hafa aðgang að. Á efstu hæð er eitt svefnherbergi sem er með einkabaðherbergi ásamt svölum sem snúa einnig að sundlauginni.
Mjög miklir möguleikar sem þessi eign hefur uppá að bjóða bæði fyrir eigendur eða leigu.