Markaðsvirði eignar
Kr19.600.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Snyrtileg neðri hæð einungis 250 m frá strönd í Torrevieja. Iðandi mannlíf miðborgarinnar er skammt undan og öll þjónusta við hendina.
Um er að ræða rúmgóða stofu/borðstofu með loftkælingu/hita og arni. Hálfopið er inn í eldhús sem er jafnframt rúmgott með plássi fyrir eldhúsborð og stóla. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og gott baðherbergi með sturtu. Góð verönd og sérgarður eru framan við húsið og bílastæði er innan lóðar. Húsgögn fylgja eigninni sem og aðgangur að góðum sameiginlegum sundlaugargarði.
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is