Markaðsvirði eignar
Kr25.300.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Raðhús í Los Balcones með mikla möguleika. Staðsett á góðum stað stutt frá þjónustu og veitingastöðum. Aðeins eru um 10 mínútur að keyra í stóru verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Um er að ræða eign á tveimur hæðum sem er með 100 m2 garð/verönd að framan og snýr í Suð-Vestur. Frá amerísku eldhúsi með nóg af skápaplássi er opið til stofu og borðstofu. Stofan er stór og rúmgóð og það er einnig arinn sem er frábær til þess að hita upp eignina á veturna. Frá eldhúsi er hægt að ganga út á litla verönd að aftan þar sem er hægt að vera með þvottavél og þurrkara.
Í húsinu eru 3 svefnherbergi en það er möguleiki að bæta við herbergjum. Á þriðju hæð er solarium sem er búið að loka af og bæta við glerlokun og er hægt að nota það sem annað herbergi eða stúdíó.
Eigendur munu hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug í lokuðum garði.
Innifalið í verði eru húsgögn og raftæki í eldhús.