Markaðsvirði eignar
Kr32.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Einstök 2 svefnherbergja penthouse íbúð í íbúðarkjarnanum, "Terrazas de Campoamor". Kjarninn er eftirsóttur enda vel staðsettur rétt ofan við AP-7 með útsýni yfir Cabo Roig og því stutt frá strönd og verslunarmiðstöðinni Zenia Boulevard svo eitthvað sé nefnt. Stutt rölt í aðra þjónustu og veitingastaði. Kjarninn sem er byggður af TM er afhentur nýr 2017 og er einkar glæsilegur og vel umhirtur.
Íbúðin er á efstu hæð (4.hæð) í lyftuhúsi og er afar vel skipulögð og björt. Eldhús er opið með miklu skápaplássi. Stofan er rúmgóð með aðgengi út á stórar svalir sem snúa í suður og af svölum er gengið upp á stórar þaksvalir (50 fm) en þar er hlaðið útigrill (ónotað), útisturta og frábært og óhindrað útsýni út á haf og næsta nágrenni.
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Húsgögn fylgja. Stæði fylgir í lokuðum bílakjallara.
Sameiginlegur sundlaugargarður er gróin með grænum svæðum, leiksvæðum fyrir börn, útisturtum og tveimur sundlaugum.
Verð 220.000 evrur + 12-14% kostnaður (vsk & skjala og umsýslugjöld)
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.