Markaðsvirði eignar
Kr53.700.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Nýlegt og stórglæsilegt einbýli í Villamartin. Staðsett í nýju íbúðarhverfi þar sem er stutt í flest alla þónustu og veitingastaði. Einnig eru um 5 mínútur að keyra í vinsæla Villamartin Plaza sem er þekkt fyrir sína fjölbreyttu veitingastaði og skemmtun.
Þessi eign er á 2 hæðum og er með 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi. Það er stór garður fyrir framan þar sem er einkasundlaug, verönd sem er fullkomin sem grillsvæði og einnig er bílastæði inni á lóðinni. Á jarðhæð er glæsilegt eldhús sem er opið til stofu og borðstofu ásamt 1 svefnherbergi og baðherbergi. Í stofunni er stigi sem fer upp á aðra hæð þar sem eru 2 svefnherbergi og eru þau bæði master svítur sem eru með sín eigin baðherbergi. Á annarri hæð heldur stiginn áfram upp á glæsilegar þaksvalir þar sem er frábær sólbaðsaðstaða með frábæru útsýni.
Innifalið í verði eru húsgögn, innbyggt loftkælingar og hita unit og raftæki í eldhús.
Verð 349.995€.