Markaðsvirði eignar
Kr33.400.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Nýr og glæsilegur íbúðakjarni er kominn í sölu í Santa Pola aðeins 100 m frá strönd. Kjarninn samanstendur af 3 íbúðabyggingum með alls 95 íbúðum. Í blokk 1 og 3 eru 35 íbúðir og í blokk 2 eru 25 íbúðir. Þær íbúðir sem komnar eru í sölu eru á 1. - 4. hæð og eru ýmist með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Á síðari stigum munu einnig koma í sölu íbúðir á 5. og efstu hæð með stóru sólarþaki sem koma bæði með 2 og 3 svefnherbergjum. Stærð íbúða er á bilinu 80 - 106 fm og svalir eru 14 - 17 fm.
Íbúðakjarnanum fylgir sameiginlegur garður með glæsilegri sundlaug og bílastæði eru innan lóðar.
Verð 230.000 - 420.000 €
Tilbúið til afhendingar í lok árs 2024.
Nánar um svæðið:
Santa Pola er staðsett á Costa Blanca suður í um það bil 20 mínútna akstursfjarlægð suður af flugvellinum í Alicante. Santa Pola er þekkt fyrir sögulegar minjar, merkilega höfn sína, vötn, saltminni og strendur undir merkjum Bláa fánans; og tákn um gæði. Santa Pola er þekkt fyrir fjölbreytt landslag, allt frá útsýni til villtra og síbreytilegra sandalda og svo til fjarlægra fjalla. Höfn bæjarins er einstök, staðsett í miðju kastala og er umlukin einstakri náttúru. Ferðaþjónusta er meginatvinnuvegur Santa Pola en þar er að finna mikla saltverksmiðju sem er mikið kennileyti þar um slóðir. Í höfninni eru að staðaldri mesta magn fiskibáta allra hafna við Miðjarðarhafið. Santa Pola tengjast svo nokkrar dásamlegar strendur, þar á meðal yfir 4 kílómetrar af fínum sandi og kristaltæru vatni. Við Santa Pola er tilvalið að iðka fjölbreytilegar sjóíþróttir: Brimbretti, siglingar, sund, veiði, þotur og fallhlífarstökk við ströndina. Íbúar í Santa Pola eiga kost á líflegu félagslífi allt árið, bæði vegna fjölþættrar þjónustu sem þar má finna og svo nálægðar við borgina Alicante sem er staðsett aðeins nokkurra kílómetra fjarlægð.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is