Markaðsvirði eignar
Kr31.400.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Spennandi eignir við Roda Golf. Staðsett í góðu hverfi þar sem er stutt í flesta þjónustu og veitingastaði. Aðeins eru nokkrar mínútur á Roda Golfvöllinn. Einnig er stutt í verslunarmiðstöðina Dos Mares eða um 10 mínútur.
Hver eign er með stóra lóð þar sem er einkasundlaug, það er bílastæði inni á lóðinni og það eru þaksvalir þar sem er hægt að njóta sólarinnar allan ársins hring. Um er að ræða eign með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi en einni er hægt að fá hús með 3 svefnherbergi.
Frá eldhúsi er opið til stofu og borðstofu og frá stofu er gengið út á veröndina. Bæði svefnherbergin eru með innbyggða fataskápa en annað herbergið er líka master svíta og er því með einkabaðherbergi. Frá báðum svefnherbergjum er gengið út á verönd á bakvið húsið þar sem er þvottahús. Þar er einnig stigi sem fer upp á þaksvalirnar.
Verð frá 209.000€.