Markaðsvirði eignar
Kr34.900.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Notalegt einbýli í La Vega Baja del Segura, Vistabella stutt frá San Miguel bænum. Stutt er að nálgast hversdags þjónustu og eru golfvellirnir Vistabella, Campoamor og Las Colinas allir nokkrum mínútum frá.
Um er að ræða einbýli sem situr á lóð sem er 500 m2 og þar af leiðandi með stóra verönd/garð með einkasundlaug, grillsvæði, innkeyrslu og bílastæði. Húsið sjálft er 150 m2 með þrem svefnherbergjum, tveim baðherbergjum, rúmgóðri stofu, opnu eldhúsi og vínkjallara.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is