Markaðsvirði eignar
Kr50.200.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Nýr kjarni á frábærum stað í La Zenia / Playa Flamenca í göngufjarlægð frá Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni.
Um er að ræða samtals 2 blokkir á 4 hæðum með íbúðir á jarðhæð með einkagarði, þakíbúðir með þaksvölum og svo íbúðir á milli hæða með svölum.
Stutt er að nálgast alla hversdags þjónustu og veitingastaði en kjarninn er staðsettur rétt við Mercadona við N-322 í Playa Flamenca.
Hver íbúð er með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt eldhúsi sem er opið til stofu og borðstofu. Hægt er að fá 3 svefnherbergja íbúðir líka. Frá stofu er gengið út á svalir sem eru með útsýni yfir miðjarðarhafið og sameiginlega garðin þar sem eru tvær sundlaugar og sólbaðsaðstaða. Það fylgir með stæði í bílakjallara.
Stærð frá 70 m2 upp í 109 m2
Fjölbreytt úrval íbúða og er verð frá 334.000€ til 449.000€.
Blokk 1 afhendist í desember 2025 og blokk 2 í mars 2026.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]