Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0829
€. 3.300.000

Einstök lúxus villa á best stað á Las Colinas

Kr488.700.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 864 fm
Fjöldi svefnherbergja 4 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 6 baðherbergi
45 km
6 km
1 km
-

Markaðsvirði eignar

Kr488.700.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir: Einstaka lúxus villu, á einni af bestu lóðum inná Las Colinas svæðinu. Fallegur inngangur þess með náttúrulegum steinvegg sem leiðir inn í stofu. Með mögnuðu útsýni yfir hinn margverðlaunaða golfvöll. Þessi villa er um 870 fm stór á 3 mismunandi hæðum, byggð á 1.600fm lóð. Hún samanstendur af 4 stórum svefnherbergjum og 4+2 baðherbergjum. Á aðalhæðinni er ein hjónasvíta og stórt opið flæði á milli eldhús, borðstofu og stofu. Hönnað þannig með sýnilegum gluggum, frá botni til topps, til þess að hindra ekki neitt sjónahorn sem er yfir stórglæsilega golfvöllinn. Úti svæðið er fullkomið, "landscaped" garður með yfirbyggðum svæðum, infinity sundlaug. Fullkomið útieldhús og einnig chill aðstaða með úti-arinn. Á fyrstu hæð eru síðan 3 svefnherbergi, eitt af þeim hjóna svíta með eigin baðherbergi, eitt baðherbergi og opin stór verönd með töfrandi útsýni. Í kjallaranum er bílskúr, "skemmtiherbergi" og SPA sem samanstendur af slökunar svæði, búningsherbergi, gufubaði, nuddpotti og upphitaðri innisundlaug. Sannarlega fallegt í alla staði. Eignin er fullbúin hágæða húsgögnum.

Smá meiri lýsing; snjall heimakerfi, sólar-panel, gólfhiti, loftkæling, rafmagns gardínur, schüco hurðarkerfi, heimilistæki, infinity sundlaug, gufubað- upphituð sundalug og nuddpott, lyfta fyrir allar hæðir, 3 hliða gas-arinn, skemmtunarherbergi og marmaragólf. Ásett verð 3.300.000€.

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.