Markaðsvirði eignar
Kr26.900.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Glæsilegar tveggja og þriggja svefnherbergja íbúðir í lokuðum kjarna sem heitir Nueva Ribera Beach Club.
Íbúðirnar eru í boði á mismunandi hæðum og eru smekklega hannaðar. Í eignunum eru 2 svefnherbergi og 1 baðherbergi, nútímalegt eldhús með tækjum, borðstofa og stofa með rennihurð út að einka verönd. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og afhendast með öllum húsgögnum. Örfáar íbúðir eftir!
2 svefnherbergja íbúðirnar eru um 50 fm að stærð. Verð frá 170.000 til 178.000 €.
Smá um kjarnann og svæðið: Glæsilegur íbúðarkjarni á frábærum stað í aðeins 150 m fjarlægð frá strönd við Mar Menor lónið. Svæðið er afgirt með 24 tíma gæslu. Í kjarnanum eru 1, 2 og 3 svefnherbergja íbúðir. Með öllum íbúðum fylgir loftkæling, eldhústæki, bílastæði í bílakjallara og geymsla. Sameiginlegur sundlaugargarður. Frábær staðsetning, stutt í strendur Mar Menor og hér hefur þú mikið úrval af börum, veitingastöðum og verslunum. Aðalhótelið - Hotel 525 er líka í stuttu göngufæri.