Markaðsvirði eignar
Kr19.200.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Notaleg íbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi með lyftu staðsett á frábærum stað í Cabo Roig, alveg við göngugötuna þar sem öll þjónusta og veitingastaðir eru í göngufjarlægð frá. Einnig stutt í næstu strönd og aðeins í 5 mínútna akstursfjarlægð frá Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni.
Um er að ræða 65 m2 íbúð sem snýr í suðurátt með tveimur svefnherbergjum, bæði með innbyggðum fataskápum og einu baðherbergi. Íbúðin er seld innréttuð með húsgögnum og er með bjarta stofu/borðstofu og fullbúnu eldhúsi.
Það er sameiginleg sundlaug og bílakjallari með einkabílastæði sem fylgir kjarnanum
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is