Markaðsvirði eignar
Kr84.300.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir: Glæsilegt einbýli í Moraira sem er bær norðan við Alicante og Benidorm. Stutt er að komast í hversdags þjónustu og veitingastaði sem er í göngufjarlægð frá eigninni. Það tekur um 30 mínútur að keyra til að komast á Benidorm.
Um er að ræða eign sem var byggð árið 2002 og situr á 879 m2 lóð og er þar af leiðandi með stóran garð í kringum húsið með einkasundlaug og bílastæði.
Húsið sjálft er 316 m2 á tveimur hæðum og er með 6 svefnherbergjum, 4 baðherbergjum, 2 setustofum og 2 borðstofum.
Gengið er inn í forstofuna sem er beint á móti stofunni með arinn og aðgengið út á veröndina með sundlauginni. Hjá borðstofunni er fullbúið eldhús og fjölskyldubaðherbergi ásamt hringstiganum. Síðan eru tvö rúmgóð svefnherbergi, annað baðherbergi og geymsla á jarðhæðinni.
Á næstu hæð eru 3 önnur rúmgóð svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt aðgengi út á svalirnar, önnur stofa.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is