Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 0885
€. 99.900

Glæsilegar íbúðir í Condado de Alhama

Kr15.100.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 75 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 2 baðherbergi
-
-
-
-

Markaðsvirði eignar

Kr15.100.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir: Ný fjölbýli á fallegu svæði í Condado De Alhama, Murcia. Hér er um að ræða 4. nýjar blokkir með alls 64 ódýrum en fallegum íbúðum, með 16 íbúðum í hverri blokk, 4. íbúðir á hverri hæð. Byggt í fyrstu línu við stórkostlegan 18 holu golfvöll. Íbúðirnar samanstanda af amerísku eldhúsi, með stórri stofu-borðstofu, 2 svefnherbergjum (eitt en-suite) og 2 baðherbergjum. Allar íbúðirnar eru með fallegt útsýni yfir nærliggjandi svæði. Með jarðhæðunum er stór einkagarður enn miðhæðir með 18fm svalir. Með öllum eignum fylgir sérmerkt bílastæði. Verð 99.900 - 139.400€.

Alhama sýslan - Murcia. Er 20 mín frá Corvera-Murcia flugvelli og einnig Mazzarón-flóa sem býður uppá fjölbreyttar strendur og smábátahöfn. 30 mínútur til Murcia og Cartagena borgar. Glæsileg svæði, með frábæru golfsvæði með gnægðri aðstöðu eins og leiksvæði fyrir börn og úrval sundlauga í samfélaginu til þess að velja úr og vel viðhaldna garða. Einnig er verslunarhúsnæði á staðnum sem býður upp á úrval af kaffihúsum og veitingastöðum, matvörubúð og annarri þjónustu. Hljóðlátt og rólegt hverfi með lítilli bíla umferð. Svæðið er vaktað 24/7.

 

 

 

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.